Húsavíkurstofa opnar upplýsingavef
Nú er unnið að upplýsingavef Húsavíkurstofu. Þar verður skrá yfir alla þjónustuaðila í bænum, verslanir, veitingastaði og gististaði. Þá verða á síðunni upplýsingar um söfn og afþreyingarkosti í bænum.
Þeim sem vilja koma upplýsingum í þjónustuskrána er bent á að hafa samband við Húsavíkurstofu í síma 464 4300 eða senda póst á netfangið info@visithusavik.is


